Girls night out:
Við Kolla & Sigga Dögg ( afmælisvikubarn sem endar annaðkvöld í pommpi og prakt á Hressó) fórum í bíó áðan og slefuðum yfir Jude Law í "ALFIE". Það er ekkert grín hvað maðurinn er FAAAALLEGUR, my type of guy, *allirsemerulíkirJudeLawaðreynaviðKristínu* Myndin er fín, svona í anda Bridget Jones, nema þetta var svona karlaútgáfan og gaman að fá að skyggnast inn í hugarheim Casanovanna.
Eftir það fórum við aðeins í kotið hennar Kollu og fengum okkur í aðra tána, fórum á Hressó og fengum okkur í hina. Dönsuðum, spjölluðum, skáluðum og tókum út sætu gæjana á staðnum sem annað hvort nema lögfræði eða læknisfræði. Við Sigga fórum svo á Mama´s Tacos og fengum okkur að snæða, tókum svo taxann hjemm og Kristín tók móðursýkiskastið þegar hún ætlaði að tékka á símanum sínum.......enginn sími!!!! Kræst, hringdi niður á Mömmu....enginn sími þar, því næst í Hreyfil....enginn sími.....fór svo inn í skápinn og tékkaði í vasann á kápunni og viti menn..........SÍMINN var þar!..... kyssti hann og knúsaði og þakkað guði allt í lífinu. Var búin að sjá mig fyrir mér fara aftur upp í OgVodafone og kaupa nýjan síma...........sá svo fyrir mér þann sem hefði fundið símann.... lesandi öll daðurskilaboðin og erótísku myndirnar sem hafa verið teknar á hann *hóst*........
Takk fyrir mig, túrílú daradí!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli