mánudagur, janúar 10

Sló heimsmet í morgun þegar mér tókst að draga mig frammúr klukkan hálf átta.... Það gerðist ekki einu sinni á síðustu önn!.......jú annars lagið á föstudögunum þegar aðferðafræðin var á föstudögum klukkan 8.15, en ég er monntin með þetta met mitt vegna þess að skólinn er ekki einu sinni byrjaður! Ástæða dugnaðarins vitið þið nú þegar.

Mér finnst að það eigi að banna almenningi að fara út í svona kulda eins og búið er að vera í gær og í dag. Fólk á að fá frí í vinnu og skóla. Lá við ég yrði úti á leið minni upp að bókhlöðu.......brrrrrrr. En mín mætti þangað hress, kát og vindbarinn rúmlega níu og hóf vinnu sína, fór svo í hádeginu í Háskólabíó og hitti yndislega Vökublómið Bryndísi og eyddum við klukkustund í að sjarma fyrir nýnemum í verkfræði, stærðfræði og lögfræði :) Gáfum gos og penna í boði Vöku.

Planið er ennþá að klára ritgerðina fyrir föstudaginn og fara svo á kaffihús og í Bláfjöll eða Skálafell um helgina ef Kulda Boli hættir við að gera útaf við landann í æðiskasti sínu.

Engin ummæli: