Nato & ESB varnarmál er það sem ég hugsa um þessar stundirnar. Flétti heimildum í von um að finna eitthvað bitastætt til þess að nota í 16-20 bls ritgerð hjá Herra Baldri. Ágætt að byrja árið á massa ritgerð.....kemur mér kannski í lærdómsgírinn fyrr sem á að fleyta mér í gegn um önnina.
Við Sunna tókum Bláfjallaferða-ákvörðun áðan.......ef færið verður eins gott og í dag næstu helgi þá verður ferðinni heitið þangað..........bretti er það... enda mun skemmtilegra en að vera á skíðum. Allir sem hafa prufað eru sammála..........
Hvet alla til þess að koma og kíkja í Háskólabíó á morgun frá 12-13 því þá mun stúlka gefa gos og merkipenna ásamt því að kynna splúnkunýjan VAKANDA........þeir sem koma og heilsa fá verðlaun!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli