miðvikudagur, janúar 5

Gleðilegt ár allir og takk fyrir gamla!

Árið 2004 var mjög ánægjulegt og upp úr stendur Brusselferðin góða með eðalfólkinu úr stjórnmálafræðinni. Hlakka til að hitta þau við fyrsta tækifæri en skólinn byrjar stundvíslega 17.janúar........Kristín mun samt sem áður sitja sveitt þangaði til....skrifandi ritgerð sem kemur í bakið á mér eftir að hafa upplifað besta atburð ársins :)

Stúlka er nýkomin heim frá Osló eftir vikudvöl þar á bæ í góðu yfirlæti. Fór meðal annars að sjá The phantom of the opera og mæli ég með því að allir fari í bíó þegar hún kemur, 4.mars.

Svo styttist í kosningar til Stúdentaráðs og læt ég hér með sterka Vökustrauma flæða til þeirra sem þetta lesa. Árshátíð stjórnmálafræðinema er líka framundan og munu herlegheitin verða rosaleg í ár enda einstaklega myndarleg árshátíðarnefnd að störfum......

Áramótaheit:

* Vakna alltaf klukkan 6.30 og byrja daginn í ræktinni
* Líta á skólann sem fulla vinnu og byrja að læra strax í janúar

flemskú aríadó



Engin ummæli: