fimmtudagur, janúar 6

Var að skoða myndir af My little pony og rakst þá á Barbie...... sakna þess að leika mér með dúkkurnar, hefði farið út í skúr og náð í þær ef ég hefði ekki gefið þær á sínum tíma...arg! Nenni ekki að vera fullorðin lengur og vildi getað spólað til baka....þegar áhyggjurnar voru engar, lífið bara leikur og aftur leikur, þykjustu mömmuleikur og hægt að ráða hvaða hlutverk maður lék.....

Annars er ég með tvær hugmyndir ár brettinu núna. Önnur er til Emmessís eða Kjörís og hin til RÚV...........

Emmessís eða Kjörís: Framleiða stór skafísbox með 3 tegundum í einu boxi. Súkkulaði, vanillu og jarðaberja. Sniðugt.

RÚV: Gefa út öll áramótaskaup frá upphafi á dvd & VHS


Engin ummæli: