Líkamsræktarárið er hafið með svo miklum látum að minns getur varla gengið, teygt úr sér eða sest á klósettið. Við Anna Vala tókum á því í Þrekhúsinu í gær og minns fór og hakkaðist á rassi og lærum. Það var þó ekki nóg fyrir hina bráðlátu Kristínu heldur skellti hún sér í skvass með Adda í Sporthúsinu um kvöldið. Verð að segja ykkur öllum að þetta er ÓGEÐSLEGA gaman! Nema ég held að ég hafi tekið rangt á með spaðann, er bólgin á vinstri únlið og með marblett á honum miðjum. Ég á þó nokkuð í land með það að kallast góð en hef lært uppgjöf og reglur leiksins. Nú þarf að fínísera hreyfingarnar og læra að lesa boltann....já.... lesa boltann. Addi var ekkert sérlega sáttur með það að þurfa að hlaupa fram og ná í hann hjá hlaupabrettunum. Svo þarf líka að koma sér í form en leikurinn í gær var með léttara móti enda vann ég þaulreyndan Addann í skvassi *hóst* Hann reyndi þó óðum að klóra í bakkann með því að koma með einhver ólumpíuskot sem Kristín að sjálfsögðu sá við :) ..........Kemur Addi.
Þetta var erfitt í byrjun þar sem ég lét það sérstaklega trufla mig að allir gátu horft á okkur spila í gegnum glervegginn. Hvert skipti er ég tók golfsveifluna og klikkað var ég viss um að fólk hefði haldið að ég væri í rangri íþrótt með spaða í stað golfkylfu, eða þegar ég tók ofursveiflu í þvílíkri "pró-stellingu" og klikkaði. Mæli með Skvassi en ég mun mæta í næstu viku aftur tilbúin í slaginn.
Í kvöld er hins vegar opnunarkvöld kosningamiðstöðvar Vöku sem velunarar er velkomnir á :) Því næst er það Hressleiki á Hressó með ávalt VAKAndi fólki.
Partý er líka annað kvöld hjá okkur í Vöku á Hressó þar sem bjór verður í boði fyrir þá sem mæta með Vökumerki, að sjálfsögðu eru velunarar okkar velkomnir aftur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli