mánudagur, janúar 24

Var að lesa bloggið hjá ágætum vini mínum, Adda. Hann var að tala um "geri þetta bara á morgun frasann". Hjá mér er sá frasi annað hvort eftir viku eða bara aldrei. Áttaði mig á því áðan að ég hef ekki tekið til í kompunni minni síðan ég flutti á Eggertsgötuna fyrir 1 og 1/2 ári en kompan er alltaf lokuð og þangað fer enginn(kompan er nota bene fermeter á stærð). Ég vil ekki henda blöðum heldur fer með þau í endurvinnsluna, en nú er svo komið að ég get varla lokað kompunni venga þess að ég tek alltaf "geri þetta á morgun frasann" þegar ég ætla að fara með bunkann í Sorpu. Vil heldur aldrei henda námsefni og á sennilega Íslandsmet í að spara það að henda óþarfa drasli. Hugsa alltaf að það hljóti að koma að notum einhvern daginn. Sá líka áðan þegar ég var inni í kompunni, bölvandi sjálfri mér fyrir framtaksleysið í þessum málum, að ég er heldur ekki búin að senda jólapakkann til Önnu vinkonu í Köben ennþá. Það fór víst undir "geri þetta aldrei frasann".
Skömm.

Engin ummæli: