sunnudagur, október 30

Misheppnaður Egill - sjalfumglaður Gísli

Sjá hluta af Silfrinu áðan. Mér finnst alltaf gaman að því þegar tökur hefjast áður en þáttastjórnendur átta sig á því að verið er að sýna þá "live". Gerðist áðan hjá Agli Helga. "Nei, horfið bara á mig......ekki í myndavélina." Þetta sagði hann við þá Gísla Martein og Vilhjálm Vilhjálms, sem báðir berjast um oddvitastöðuna hjá Sjálfstæðisflokknum í Borginni. Hvað er málið með það að mega ekki horfa í myndavélina? - var Egill hræddur um að Gísli gæti ekki verið hinum megin við borðið og færi jafnvel að stjórna þættinum hans? Annars finnst mér merkilegt hvað menn geta alltaf haft orð andstæðinga sinna að leiðarljósi og sem reglu um leið og það þóknast viðkomandi. Þetta gerði Gísli Marteinn með því að vitna í Mörð Árnason af öllum. Jú, Mörður á að hafa haft þá skoðun að þeir stjórnaranstæðingar sem vildu Vilhjálm í fyrsta stætið skv skoðunarkönnun vildu hann frekar því þá væri auðveldara að sigrast á flokknum. Gísli tekur þessu að sjálfsögðu sem svo að hann sé hinn eini rétti í Borgina, því þeir sem eru EKKI sjálfstæðismenn og vilja frekar Villa, vilji hann bara því hann eigi ekki að geta staðið sig. Þvílík vitleysa. Eru menn svona ótrúlega uppfullir af sjálfum sér að þeir geti ekki trúað því að aðrir geti verið hæfir til verks?

Ég vil þann hæfasta og ég tel Gísla alls ekki vera það - hann var góður í morfís, góður í Vöku, góður á RÚV - en hann þarf að bíða með Borgarstjórastöðuna. Nema hann sé að reyna að taka Geir Hallgríms/Davíð Odds á þetta, gæti verið.

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sko ég veit ekki hovr er betri Vilhjálmur eða Gísli !! Samt held ég meira með Gísla þar sem mér finnst vilhjálmur svo mikill hrokagikkur alveg eins go dóttir hans og því miður fara þau bæði jafn mikið í taugarnar á mér :( Væri Gísli ekki flottur í borgarstjóranum !! Allavega er hann með skemmtilegri talanda en núverandi borgarstjóri .... (þó mér komi þetta alls ekkert við og hitt er að ég er enginn sjálfstæðismaður ...enda óflokksbundin )

Nafnlaus sagði...

Mér fannst Gísli reyndar ekkert sérstaklega góður í Vökunni .... en það er bara ég kannski.

Síjú skvís !

Huginn sagði...

Þó það sé ekki málefnaleg afstaða þá þykir mér hann Gísli Marteinn svo hryllilega leiðinlegur og sjálfsumglaður með sitt uppgerða bros öllum stundum svo um mig fer hrollur. Þykir hann ætla sér ansi mikið án þess að hafa náð árangri í síðustu kosningum, annað sæti hefði verið eðlilegra, þó hann taki líklega það sæti ef hann tapar gegn Vilhjálmi... Hann er samt duglegur með auglýsingar og það hefur nú sýnt sig að fólki má sveigja eftir vindum peninganna, samanber hástökk framsóknarflokksins á lokaspretti síðustu kosninga með gylliboðum og galdrabrögðum :) en jæja...

Nafnlaus sagði...

Held reyndar að það hafi fleiri en Mörður dregið þessa ályktun þó að hann hafi eflaust fyrstur sagt hana opinberlega. það er ekki þar með sagt að menn séu að hafa orð andstæðinga sinna að leiðarljósi. Samt spurning um að menn hái drengilega baráttu. (Má segja drengilega í dag?)

Nafnlaus sagði...

Þetta eru óþolandi vinstrisinnaðir frambjóðendur ...

Ég styð samt Gísla, hann er ferskari og vantar enga reynslu. Vilhjálmur er líka duglegur við að segja hvað hann hefur gert góða hluti, sem er ekkert athyglisvert svo sem.

Kristín María Birgisdóttir sagði...

Petra: já það er rétt að Vilhjálmur hefur ekki sama "karisma" og Gísli og það er ekki að verða honum til tekna. Gísli hefur hann engu að síður en það virðst heldur ekki að vera honum til nægra tekna þar sem vilhjálmur er með forskotið í skoðunakönnunum.

Inga Hrefna: Nei, það má vera, ég þekki í raun ekki störf hans innan vöku, en hann er engu að síður stoltur Vökumaður að sjálfssögðu og það kalla ég bara mjög gott út af fyrir sig.

Huginn: Ég er ekki sammála því að Gísli sé leiðinlegur, ég hef í raun mjög gaman að honum. Hann hefur mikla trú á sjálfum sér og það þarf í þessu sem hann er að taka sér fyrir hendur - og því er ekki óalgengt að menn séu ásakaðir fyrir það að vera "sjálfumglaðir" :)

Kristján: drengileg barátta fyrirfinnst ekki í nútímaþjóðfélagi!!

JP: það er rétt að Gísli er ferskari - ef menn gætu sýnt fram á góða stjórnun í borginni út á freskleikann einan og sér þá væri honum BORGið - EN, það þarf meira til. En ég ætla annars ekkert að taka manninn af lífi. Hægt væri að taka sitt hvað úr þeim báðum og ná fram mjög frambærilegum og góðum frambjóðanda.!

Tryggvi sagði...

Daginn sem stuttbuxnadeild Sjálfstæðisflokksins, uppalinn á hinum yfirgengilega þrönglýna en hundtrygga sporgöngumanni Bláu Handarinnar Hannesi Hólmsteini, þá fyrst er borgin í vandræðum. Ég tel það lágmarkskröfu Reykvískra kjósenda að frambjóðendur séu ólygnir og hafi eitthvað meira til brunns að bera en vinsældir pöpulsins í skemmtiþáttum í sjónvarpi. Ekki að flokksgæðingurinn Vilhjálmur sé eitthvað betri en Gísli, og ekki að R-listinn sé skárri heldur.

Nota Bene: sá einhver þegar Harry Belafonte kom í þáttinn til Gísla? Oft hef ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur en sjaldan eins og þar.

Skemmtilegt blogg hjá þér Kristín María, datt hérna inn í gegnum Baddann.

tótla sagði...

stuttbuxnadeild bla bla, sjitt hvað mér finnst svona röksemdafærslur orðnar þreyttar, úreltar og hallærislegar. Skil ekki þetta stuttbuxnatal annars vegar og lopapeysutal hins vegar, ...eða hvað það á að vera. Mjög ómálefnalegt!