þriðjudagur, nóvember 1

Emily



Fórum áðan vinkonurnar og heimsóttum elskulegu Heiðu okkar. Hún og Kristofer eignuðust lítla englasnót þann 3.september nokkuð fyrir tímann. Meðfylgjandi er mynd af prinsessunni sem er fallegust. Hún var 10 merkur og gæti þess vegna hafa verið að fæðast í gær, svo lítil og nett er hún.
Hún ber hið fagra nafn Emily.

-Hef ég þegar ákveðið að taka að mér skáfrænkuhlutverkið og mun reglulega banka upp á og spyrja hvort ég megi passa.

Eins og sést var myndin tekin á símann því hleðslusnúran fyrir myndavélina mína gleymdist í Grindavík.

1 ummæli:

Kristín María Birgisdóttir sagði...

þú last ekki færsluna greinilega - hún var tekin á símann minn - þessi mynd kom bara út í grænu, á aðra af henni þar sem hún er ekki græn - en þá er hún bara sofandi