þriðjudagur, nóvember 8

Undir þínum áhrifum

Óhætt að fullyrða að Sálin sé besta hljómsveit fyrr og síðar hér á landi. Nýja lagið þeirra "Undir þínum áhrifum" er guðdómlegt. Klárlega ætla ég að kaupa mér þennan nýja disk pilta. Myndbandið við þetta lag á einnig hrós skilið og ég skal hundur heita ef það fær ekki verðlaun á næstu tónlistarverðlaunahátíð.

3 ummæli:

tótla sagði...

enda leika fallegustu bræður landsins í því, annar nýorðinn 13 ára og hinn 1 1/2 árs... hhuhu, ég sakna þeirra:( sniff

Nafnlaus sagði...

heyrðu -ég vissi að sá eldri væri í því - og var einmitt þess vegna að leita að hinum - er bara búin að sjá myndbandið einu sinni en ætla að reyna að rekast á litla mann næst :) styttist í heimför elskan - bara einn og hálfur mánuður! þekki biðina en þetta líður ekkert smá hratt......

Nafnlaus sagði...

ég er hjartanlega sammála kellz...