Það er svo skemmtilegt við stjórnmálafræðina að alþjóðakerfið tekur alltaf sífelldum breytingum og bókin sem ég hafði í fyrra er úreld í ár. Nýjustu fréttir af ESB er að Tyrkir hafa LOKSINS komist á eitthvað skrið með aðildarviðræður en þær munu engu að síður taka nokkur ár. En það skemmtilega er að þær eru líka hafnar við Króatíu. Á meðan það gerist ræðum við ástæður fyrir því hvers vegna Ísland og Noregur hafa ekki ENN gengið inn og hver staða smáríkjanna er í þessum mikla samruna sem er að eiga sér stað. Hef svo komist að þessu:
* Laufin eru að falla af trjánum í þessum rituðu orðum
* Mjólk er ekki eins holl og haldið er fram skv Sirrý vinkonu og blogginu hennar
* fjólublár kristall plús er betri en rauður
* Íslenskir karlmenn eru fallegir
* Kennarar við HÍ eru klárir
* Vaka verður bara betri
* íslenskur bjór er ekki lengur góður
* meira djamm er yfir veturinn en sumarið - í raun ætti það að vera öfugt
* reykingabann er mjög móðins að mínu mati
- ætli bjórinn verði ekki ódýrari við inngöngu í ESB?
takkfyrirbless
5 ummæli:
það er ekki lítið sem þú ert klár. Ég er sammála flest öllu.. en það meikar samt sens að það sé mikið djamm á veturna, annars væru sjálfsmorð tíðari.
Bryndís: já ég skal alveg vera klár en þú ert snillingurinn - þú veist það er það ekki?
Boggi: smakkaðu belgískan bjór!! þegar þú kannt að meta hann þá sérðu að íslenskur er ekkert svo góður
Sigga: Ég var á Brennslunni um daginn og ætlaði að fá mér KVAK, en hann var ekki til, og ef hann var ekki til þar þá get ég ekki ímyndað mér hvar hægt sé að fá hann - fékk mér Leffe í staðinn og hann er geðveikur!!
ég tek þetta til mín með íslensku karlmennina :)
"mjólk er góð" er mesta lygaslagorð sem ég hef séð, mamma segir að ég hafi sagt þetta mjöööög ungur.
Loksins sé ég ljós varðandi hvers vegn við ættum að ganga í evrópusambandið :)
já JP, skrítið, þetta var nefninlega algerlega ætlað þér og BARA þér!! kunni ekki við að skrifa það svona beint sjáðu til ;) en samt virðist herramennskan algerlega vera að fara með þessa íslensku - mega aðeins slaka þar
leffe er geðveikt góður bjór, sérstaklega þessi hálfdökki. Þú mátt nú ekki vera hógvær fyrir hönd íslenskra kvenna, þær eru framúrskarandi sætar
Skrifa ummæli