Ég vissi að ég ætti eina alnöfnu á Íslandi, Kristínu Maríu Birgisdóttur II. eða reyndar I, hún kom víst á undan. Aldrei bjóst ég samt við því að fá alltaf endrum og sinnum póstinn hennar inn um mína lúgu þar sem búið væri að krassa yfir Borgarfjarðarsveit og merkja "Eggertsgata 20 íbúð 004" EN jú, viti menn.........fór vandræðaleg um daginn að Eggertsgötu 10, því það hafði í raun verið krassað yfir Eggertsgötu 10 og sett í staðinn "rétt heimilisfang Eggertsgata 20 íbúð 004" umslagið var ekkert merkt neinu sérstöku fyrir utan nafnið, stóð ekkert "Ríkisskattstjóri" eða neitt álíka þannig að ég reif bara upp umslagið. Nei nei, þá var þetta alls ekkert til mín því ég kannast ekki við að eiga barn á leikskóla. Ég fer því með póstinn að Eggertsgötu 10 og athuga hvort að nafna mín búi ekki þar. Jújú, passar. Ég finn hólfið hennar en ákveð samt að hringja hjá henni til að láta hana vita af hverju eitt umslagið í hólfinu sé opið. En hún svarar ekki. Ég ákvað því að láta þetta vera þarna og hugsaði með mér að hún myndi sennilegast átta sig á ástæðunni fyrir því að ég opnaði umslagið. Svo í gær kom til mín stórt brúnt umslag með fullt af öðrum umslögum, framan á þessu brúna stóð "Adresse compléte du destinataire: Eggertsgata 20 íbúð 004" og inni í þessu blessaða brúna umslagi er póstur til Kristínar Maríu Birgisdóttur sem bjó einu sinni í Borgarfjarðarsveit. Held að pósturinn þurfi að átta sig á því að það eru tvær með þessu nafni á Íslandi og þær búa EKKI í sömu íbúð þó svo að þær séu Eggertsgötubúar. - Vona bara að hún skili mér mínum pósti ef hann villist af leið. Læt þá bara Bogga um að tékka á því, þau er víst félagar í sálfræðinni. Komst að því þegar Boggi hélt í alvörunni að ég hefði ákveðið að skrá mig í vísindaferð hjá sálfræðinni. Right.
laugardagur, október 8
Kristín María Birgisdóttir II

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Ég á engan alnafna og ekki Gugga heldur né litli kallinn. Það eru hins vegar nokkrir Sigurbjörn Jónsson og nokkrir Sigurbjörn Arnar en enginn Sigurbjörn Arnar Jónsson enda er bara einn ég í öllum skilningi þess:)
Bíddu ertu að segja að þú sért of merkileg fyrir vísindaferðir í sálfræði? hmmm
hehehe - nei alls ekki meint þannig - langar einmitt líka að læra sálfræði - myndi gera það ef ég hefði efni á að vera í skóla ALLTAF. Annars hefði mér fundist það súrt að klína mér í sálfræðivísindaferðir þegar svona þétt er setið um þær í fræðinni og langt í frá allir komast að!!!
Maður má telja sig heppinn ef maður kemst með í vísindaferði í sálfræðinni.
Skrifa ummæli