Málþingið sem ég sótti á föstudaginn var áhugavert. Hafði gaman að - þó svo að ég hefði setið í 3 klst þá glósaði ég eins og vindurinn og er stefnan sett á pistlabakstur með hráefnið. Meira um það síðar. Sóttum afmæli í gær en Emilía Sjöfn átti 24 ára afmæli föstudaginn 30.september. Til lykke elskan. Eftir það fórum við Bríet á tvo ágætist skemmtistaði og rak ég augun í athyglisverða hluti enda ekkert áfengi við hönd þetta kvöldið. Verð að segja að Vegamót og Ólíver eru bara alveg ágætir.....En Ólíver þarf hins vegar að læra það af Vegamótum að það þarf pláss til að geta unnið þarna sem dyravörður. Mæli með því að þeir stækki "free space" með keðjum og kenni íslensku skemmtanaþyrstu fólki að mynda venjulega biðröð - klárlega er fólk í glasi ekki að ná því að standa í biðröð fyrir utan Ólíver - Jú staðurinn er ungur og þeir þurfa að fara að draga lærdóm af skipulaginu annars staðar. Hins vegar þegar komið er inn á Ólíver þá skýtur hann Vegmótum ref fyrir rass hvað varðar hönnun og skipulag - óþolandi að ganga inn á Vegamót og beint inn a dansgólfið. Hann er eitthvað svo ópraktískur í hönnun.annars finnst mér þessi mynd sýna fyrirmyndar klúbb þar sem fólk kann að standa í röð- vantar líka svona bleika bíla í Reykjavík city.
Hef komist að því að við, Eyrún & Sigga Dögg þurfum að hitta á algerlega gallalausa mynd ef að við ætlum að halda kjafti á sunnudagsvideokvöldi en myndin Sahara fékk að kenna á þvi í gær! "Hi, how are you doing?". skemmtilegt. mátti eiga það að hún var fyndin.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli