Hagstjórnardagurinn var í gær. Hagfræðin á móti stjórnmálafræðinni í hinum ýmsu greinum. tvær nýjungar litu dagsins ljós. Fótbolti kvenna og skák. Mjög strembið var að ná í fótboltalið okkar stúlkna og leit út fyrir að við þyrftum að gefa leikinn til hagfræðinnar. Að lokum tókst okkur þó að ná í lið og unnum hagfræðistúlkur 12-0. Harðsperrur hafa einkennt daginn ásamt "nettum" timburmanni. Vísindaferð í aðalbankann ásamt hagfræðinni var skemmtileg enda veitir Landsbankinn alltaf vel. Eftir fyrirlestur um ágæti bankans, bjór og snittur fórum við á Gaukinn þar sem við tók ennþá meiri bjór, skákkeppni, bjórþamb, sjómann, spurningakeppni og annað skemmtilegt. Því miður töpuðum við Hólmsteininum í ár - og í raun Hagfræðin líka, því einhver stal verðlaunagripnum sjálfum. Gerðist líka í fyrra. - Húmor.
laugardagur, október 15
Fótbolti á Hagstjórnardegi

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
9 ummæli:
Og var ekki Kristín María star player? Skoraðiru ekki tvö og lagðir upp 10 :)
Þú tókst allavega vel á því í þessum leik, það kom berlega í ljós á Óliver í kringum 1.30 á aðfaranótt laugardags!
já - fótboltaformið mitt var sko langt í frá að vera upp á sitt besta. en jú ég skoraði tvö og lagði eitthvað upp - klárlega var þreytan líka að segja til sín enda við búin að vera að síðan um hádegi.
heyrðu Kristín María, ég fékk send nokkur Séð og Heyrt blöð hingað til Ástralíu og þar sá ég mynd af þér að veiða! Það var alveg frábært, varð bara að segja þér frá þessu:)
Veiða hvað!!!
já það passar sko! fór í sjóstangveiði og náði í 6 stykki - ferlega gaman
það gladdi mig að sjá þig í Se og hör, reyndu að fá fleiri myndir af þér þar, getur kannski hóað í Bryndísi og fleiri tátur og hringt svo í ljósmyndara blaðsins og boðið honum að taka myndir úr stelpuboðinu. Annað eins hefur nú gerst, man eftir svona "frétt" með Ásdísi Rán og Chloe ef ég man rétt:)
Er ekki stelpupartý næstu helgi? Kristín þú hringir bara í öll glanstímaritin og segir þeim að mæta!! :P
hahaha - já djöfull er það sniðugt!! Tek ekki annað tímarit en Cosmopolitan eða Elle til greina - jú kannski GO eða eitthvað álíka ;)
Skrifa ummæli