það besta við veturinn eru ekki bara jólin sem framundan eru heldur fylgja Norðurljósin líka vetrinum, það magnaða er að í öllu neikvæðu má finna eitthvað jákvætt. í skammdeginu, því svartasta, finnur maður jólaljósin.......OG Norðurljósin. labbaði heim áðan af Stúdentakjallaranum og norðurljósin voru massív. Mikið væri ég til í að geta keypt mér eitt stykki Norðurljós og skellt í í loftið þegar ég fer að sofa.Helgin einkenndist annars af fundarsetu á þingi Norðurlandaráðs ungliða. fórum m.a. í móttöku í Ráðhúsið og í dinner í Viðey í boði KB-Banka. Blaðið okkar í stjórnmálafræðinni fer senn að koma út og ekki nema rúm vika í útgáfupartýið mikla sem haldið verður á Pravda. allir greinahöfundar, auglýsendur, styrktaraðilar, nemar í stjórnmálafræði og kennarar fá að mæta en þeir útvöldu fá boðskort, sem elskulega anna vala er að hanna.
Fannst annars kvennafrídagurinn sæmilegur í gær - fékk innilokunarkennd á Ingólfstorgi og lagði upp í mission impossible á móti staumnum við lítinn fögnuð kynsystra minna. Var að spá í að kalla "woman in labour" en áttaði mig fljótt að það myndi ekki virka. tók bara skynsemina á þetta og ráðlagði öllum konum sem ég tróðst framhjá að fara ekki lengra, þetta væri hætt að vera sniðugt. allt of mikill troðningur og þakkaði ég mínu sæla að ná að bjarga mér inn á Subway til að ná andanum.
Næst kveiki ég bara á útvarpinu.
7 ummæli:
hey, ég skal bara selja þér norðurljósin, leggðu bara svona 1500 kall á reikning 0140-26-009594 kt 2707824189
Fyrir þennan 1500 kall máttu bara eiga öll norðurljósin, ég þarf ekkert að eiga þau lengur..
Kveðja,
Laddi
Við Vala vinkona skelltum okkur einmitt í bíltúr niður að sjó í gær til að horfa á Norðurljósin..Voru ekkert eðlilega falleg í gærkveldi/nótt.. Spurning um að skella sér í göngutúr á Ægissíðunni í kvöld ef þau verða aftur svona...??? Við Garðastelpurnar saman ;)
Sigga Dögg: Algjörlega sammála þér með þessa fáránlegu aðgerðir lögreglu. Ég hefði betur átt að fara þeim megin sem þið fóruð því ég sat föst á Subway í rúmlega korter áður en ég hætti mér aftur út í troðninginn.
JP: ert þetta þú eða Laddi að þykjast vera þú? 1500 kall fyrir Norðurljósin? það er ekki neitt, kaupi þau.
Guðfinna: labbtúrahugmyndin er snilld - plönum solleis ferð á næsta vetrarkvöldi þegar logn er, kalt og norðurljós - löbbum út í móa við Ægissíðuna, horfum upp í himininn og gætum sagt eins og eina draugasögu, svona til þess að koma adrenalíninu aðeins af stað. virkar hjá mér.
Já, segðu mér annan! Lenti í því sama á kvennafrídaginn.. svo heyrði maður ekkert í barátturæðunum vegna lélegs hljóðkerfis. Guð hjálpi mér að segja svona, en það gæti verið að hljóðmaðurinn hafi verið kona! ;) takk fyrir síðast á Oliver. Leitt með klúðrið og FM herskarann á sömu hæð en gerum bara eitthvað annað næst!
hahaha - já sennilega kona - og svona 50% að minnsta kosti - nei grín - en skipulagt kaos var þetta.
Næsti skvísuhittingur verður klárlega betri næst - Ólíver gæjarnir gerðu þetta viljandi, engin spurning!
Ég stóð einmitt í góðu plássi á Austurvelli og fannst hátalarinn hljóma fínt. Æðislegur dagur fyrir mér.
Greinilega mismunandi upplifun!!
já, klárlega - jafnvel að sumir hátalarar hafi hljómað betur en aðrir. vildi að fleiri konur hefðu kosið að standa í góða plássinu á Austurvelli - varð hálf pirruð út (vin)konurnar að þurfa allar að troðast fremst - augljóslega var plássið af skornum skammti þarna á Ingólfstorgi. En ég var ekkert pirruð lengi - böggaði mig bara að einhver kall fór að rífa sig þegar ég reyndi að troðast framhjá honum - var að spá í að spyrja hann bara af hverju hann væri ekki bara heima hjá sér! hann væri m.a. að taka mitt pláss!! hehehe - nei smá grín
Skrifa ummæli