Missti af útskriftinni hjá Hönnu minni í kveld og frekar súr með það - eina sem fær mig þó til að brosa út í annað vegna vonbrigðanna er útilega sem við stöllur stefnum á næstu helgi ásamt vonandi fríðu föruneyti Vökuliða og annara háskólaliða.
Las annars príðisgóðan pistil eftir formann Vöku, Ingu Hrefnu, sem skrifar með stakri snilld um málefni LÍN og nýju breytingarnar sem samþykktar voru í vor og mæli ég með því að ALLIR lesi hann hér.
3 ummæli:
Sos groxa sabelo!!
Segui asi :P
Mundu bara að vera alltaf með símann á þér núna ef þú vilt fá fréttir af fæðingu erfingjans um leið og þær berast.
jahérna - skil ekki fyrsta kommentið - held þetta sé alls ekki ítalska allavegana.........
En hlakka til að fá símtalið Sibbi - bíð spennt!
Skrifa ummæli