miðvikudagur, júní 15

...once again.....

magnað þegar það kemur sól í Grindjánaborgina hvað það þarf alltaf að fylgja mikið rokrassgat með henni - í dag er austanátt og því ómögulegt að liggja á bakvið hús án þess að krókna úr roki. Í staðinn sit ég við tölvuna og bölva þessu drasli vegna þess að ég kemst ekki inn á MSN - finnst mér hafa verið kippt úr sambandi við umheiminn þegar ég fæ ekki minn skammt af MSN-tjatti. en það er svo sem nóg að gera áður en ég held á næturvaktina í FLE kl.17.30 - mamma er á útopnu í garðinum og ég búin að lofa að fara með henni í gámana sem opna 15.00 stundvíslega og henda öllum garðúrgangnum sem við erum búnar að vera að stinga upp fyrir utan.

Annars horfði ég á Finding Neverland í gær - mikið að spá í að skella inn gagnrýni á hana í kvöld ef að tími gefst og hana gerið þið svo lesið hér til hliðar þar sem stendur Primo kvikmyndagagnrýni.

Annars ætlar stúlka að setja sig í samband við Önnu Steinunni og Bríeti og fá þær með sér á tjúttið á föstudaginn(svo gaman að djamma með þeim) - kvöldið mun heita "taka tvö" þar sem farið verður í Vökuteiti og svo í miðbæinn. Stúlka hefur ákveðið að reyna að ná Tweedy gasblöðru í tíma vegna þess að þær seldust allar upp í fyrra - pannta meira kannski?

Nú er bara málið að heldast út í sólina - grípa með sér Gutta og brenna nokkrum kkal.

A piu tardi tutti

1 ummæli:

Erla Ósk sagði...

Ja rokid i henni Grindavik er hid mesta bol... endalaust gluggavedur. Annars er otrulegt hvad manni finnst islenska loftid (og rokid) gott thegar madur er buinn ad vera i yfir 30 stiga hita og logni i soldinn tima :) Island - best i heimi :)

p.s. Bid ad heilsa Brieti!