föstudagur, júní 10

fróðleiksmoli í boði vísir.is

Fangelsuð fyrir dýraníðingsskap
Bresk kona var í dag dæmd til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir illa meðferð á dýrum, en hún hélt alls 271 gæludýr á heimili sínu. Það blasti við ófögur sjón þegar dýraverndaryfirvöld tóku hús á hinni 55 ára Rosalind Gregson í Preston á Englandi en á heimilinu voru 246 hundar sem flestir voru í búrum sem staflað hafði verið hvert ofan á annað. Þá voru einnig páfagaukar, kettir og kanína á heimilinu en mörg dýranna voru mjög illa haldin af næringarskorti og útötuð í saur. Segja dýraverndunaryfirvöld að þegar starfsmenn embættisins hafi komið á vettvang hafi þeir átt erfitt með að anda vegna óþefjar í húsinu. Lóga þurfti níu dýranna vegna þess hve illa farin þau voru en hinum hefur verið fundið annað heimili. Það þarf vart að taka það fram að dómstólar bönnuðu Gregson að halda gæludýr framar.


Ljót kona.

6 ummæli:

Sirra :) sagði...

Oj ég meika þetta ekki. Hvernig getur fólk verið svona ógeðslega heimskt og ruglað. Ahh það ætti að hrista upp í kellu og !""#!$"#%"#%#$%&$&
ég ætla skrá mig í PETA :) Fyrir öll dýrin í heiminum :) Luv og peace.

Svo skora ég alla á að skoða www.kentuckyfriedcruelty.com
og þá hætta allir að éta KFC verði ykkur að góðu :)

Kristín María Birgisdóttir sagði...

damn it - mér sem finnst tower bbq burger svoooo góður!

Nafnlaus sagði...

Ef þér vantar skiptivakt í sumar þá vantar mér frí 26 og 27 júlí!
Þú lætur mig vita ef þú hefur áhuga!
Kveðja
Hulda Katrín

Kristín María Birgisdóttir sagði...

já já!! mig vantar sennilegast skiptivakt - ég er til í að skipta við þig

Nafnlaus sagði...

Hæ Kristín, so sorry en ég gleymdi afmælinu þínu! :( og ég er að fatta það núna, þvílíkur imbi og illi! Til hamingju með afmælið í apríl og sorry að ég mætti ekki.. hvernig gekk annars í kenningunum? Þetta gekk ótrúlega vel miðað við ástandið á okkur daginn fyrir próf .. ;)

Kveðja, Sjöfn

Kristín María Birgisdóttir sagði...

hahahah - ekkert mál Sjöfn mín - mér gekk ágætlega í þessu prófi en hefði alveg viljað fá hærra - forvitin að vita hvað ég fékk fyrir masterpís rigerðina mína :D