mánudagur, júní 13

"How can we dance when the earth is turning!!?"

.....snilldar lag með hljómsveitinni Midnight oil. Kemur manni í betra skap. Vinnuhelgin búin og sólin mætt á svæðið - Kristín vissi hvað hún var að gera þegar hún bað um að fá að skipta um vakt. Það brást ekki í fyrra og hitt í fyrra og árið 2001 að þegar ég var að vinna þá var sól - og ennþá hefur ekkert breyst. Roslalega gaman á vaktinni engu að síður og liðið aðeins of hresst. Erum þegar búin að planleggja að halda Co-partý en nú er bara að finna stað. Primo kemur sterkur inn og jafnvel Nonni græja ;) (sorry, varð bara að nikka aðeins) Vegna mikillar kvikmyndaumræðu og áhuga á vaktinni var ákveðið að stofna síðu þar sem hægt er að koma með gagnrýni og kommenta - so far hefur Primo forskotið enda maðurinn búinn að sjá ALLT sem sett hefur verið á filmu síðan filman kom á markað! tékkið þetta út hérna.

Annars er ég búin að vera í garðrækt með moms og úti í smá sólbaði enda orðin eins og lík upp úr öðru. Hlakka til helgarinnar þar sem Vökufjölskyldan mun koma saman - fyrst niðri í bæ þann 17.júní í sölutjaldi í Austurstræti og síðar á Hólmaslóðinni góðu í stemmarahitting. Allir Vökuáhugamenn og konur eru meira en velkomin!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Lík er understatement um hvernig ég lít út eftir innihangs á skrifstofu frá sumarbyrjun. Hugga mig við að útifólkið verður krumpað og deyr úr húðkrabbameini eftir 2 ár, þ.e. þeir sem eru ekki þegar dauðir eftir hinar óðu killerbees sem sveima um í sólinni.
Sigga Dögg innipúki