Fékk póst frá Verkfræðinni áðan:
Ágætu háskólanemar,
nú styttist óðfluga í eina aðal djammhelgi sumarsins. Félag verkfræðinema
hefur í nokkur ár staðið fyrir útilegu fyrir háskólanema á Skógum fyrstu
helgina í júlí og verður engin undantekning á því í ár. Útihátíðin verður
haldin dagana 1. - 3. júlí. Fastir liðir verða á dagskrá, líkt og
brekkusöngur og Skógarleikarnir, en dagskrána má sjá nánar á
www.skogar.tk. Á síðunni er að auki hægt að panta sér miða sem síðan þarf
að sækja fyrsta dag miðasölu. Mikil aðsókn hefur verið í miða og því
hvetjum við fólk til að tryggja sér miða sem fyrst.
Miðasalan verður opin 27. til 30. júní, frá kl. 19.00 til 22.00 og verður
hún staðsett á Hressó í Austurstræti 20.
Miðaverð er 3900 kr. fyrir háskólanema en 4400 kr. fyrir aðra, en KB banki
veitir 500 kr. afslátt ef borgað er með ISIC korti frá þeim.
Sumarkveðjur,
Félag verkfræðinema
Ræddum það í síðasta Vökupartýi að fara - Fjölmenna í fjörið og vonandi að stjórnmálafræðinemar mæti líka á svæðið því mjög lítið var víst af þeim þarna í fyrra EF það voru nú nokkrir. Stúlka á fríhelgi og ætlar svo að skella sér eftir helgina í sumarbústað með settinu. Hanna beib var ( að mig minnir) búin að finna sex manna tjald og við vorum líka (að ég held) búin að finna lið til að vera með, ég, Hanna og Sigga Dögg í örðum helmingnum og svo þrír hressir piltar hinum megin.......correct me if I´m wrong. Við vorum í partyi NOTA BENE þegar þetta var ákveðið og því má vera að einhverjar uppl. hafi skolast til með bjórnum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli