fimmtudagur, júní 30

Downtown 101

Jæja, þá er komið að fyrstu ferðahelgi sumarsins og vonbrigði að ekki skulu verðurguðirnir verða manni hliðhollir - hefði þakkað mikið fyrir rigninguna ef ég væri á vakt helgina. Veðurspáin gerir þetta allt mjög snúið og ég sé sjálfa mig fyrir mér blauta upp fyrir haus í einhverjum tjaldvesaling á Skógum og sú hugsun er bara alls ekkert sexy. Við Hanna settum málið í smá endurskoðun og Bryndís sagði Akureyri vera málið - jú Sálin er að spila og væri ég alveg til í að keyra 400 og eitthvað kílómetra til að sjá þá. Svo er það afmælið hjá Adda beib Gravarvogsbúa - kauði er 22 ára og býður í skúkkulaðiköku! Satt best að segja væri ég frekar til í að vera inni í köku og á öldurúsi með öl í stað þess að láta mig rigna niður með dósabjórinn. Fréttablaðið lofar víst ást og friði á Skógum og mikið af efnilegum piltum á svæðinu. Freistar. Vona bara að þeir efnilegustu verði skynsamir eins og stúlka og verði í 101 helgina og láti útilegu bíða til þjóðhátíðar enda úrvalslið með meiru þar á bæ á borð við Leoncé, Bubba og TRABANT!! trúið þið því??

Þó veit ég fyrir víst að ég fer á Duran Duran í Egilshöll í kvöld, og upp í bústað til ma og pa á sunnudaginn. Hvað skal gert á föstudag og laugardag liggur þó nokkið ljóst fyrir líka - einna helst hvaða staður verður fyrir valinu - Oliver? yes? -

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég tek sko alveg undir með þér og vona að þeir efnilegustu verði jafn skynsamir og við downtown girls ;) þeir hljóta að gera það...er það ekki!!!

sunnasweet sagði...

Ekki segja mér að þú fílir Oliver??
Þetta er svona ekta footballer´s wife club að mínu mati :)
Kannski er ég bara svona mikill álfur??
Annars var Simon Le Bon bara ÆÐI í kvöld...gvuð þetta voru geggjaðir tónleikar!!!

Kristín María Birgisdóttir sagði...

jú sunna mín - mér fannst gaman þar þegar ég fór þangað síðast? Hvað fílar þú? - skil ekki footballer´s wifes líkinguna - jú það voru mikið að fótboltastrákum þarna......er það þess vegna?

sunnasweet sagði...

Jamms það er akkúrat þess vegna....
Gott samt að það er misjafn smekkur manna ;)
Ég er voðalega opin fyrir flestum stöðum....mín vanalega/vanafasta rútína er þó Ölstofan, Vegamót, KAFFIBARINN, 22 og Prikið.
En Kofinn einn getur bjargað kveldinu ef að hinir staðirnir eru eitthvað að klikka....that you know :) sem minnir mig á myndir?? Heh..

Nafnlaus sagði...

Hey babes :) var farið norður um helgina! Skildi ekki almennilega sms-ið frá þér á föstudag nebblilega ;)
Nú verður þú samt að fara að koma á djammið í bænum - you owe me one honey!

Kristín María Birgisdóttir sagði...

jámm! skellti mér á síðustu stundu með Bryndísi og Heiðdísi norður í Varmahlíð og djöfull var gaman! besta ákvörðun sem ég hef tekið í laaaangan tíma - jú, ég stend við djamm í bænum engu að síður :)

Kristín María Birgisdóttir sagði...

jámm! skellti mér á síðustu stundu með Bryndísi og Heiðdísi norður í Varmahlíð og djöfull var gaman! besta ákvörðun sem ég hef tekið í laaaangan tíma - jú, ég stend við djamm í bænum engu að síður :)