
Sá þennan þátt í fyrsta skiptið í fyrradag, mjög skemmtilegur - en hvers eigum við að gjalda hér á Íslandi sem aldrei fáum tækifæri á að fara í eitthvað svona?? Hér eru bara einhverjir þættir eins og Innlit útlit sem eitthvað gerir fyrir lýðinn og Allt í drasli! MTV stendur fyrir þessum þætti.......hvernig væri ef að Popptíví tæki sig nú til og gerði slíkt hið sama? Kannski bara að gefa bíla, fyrir fólk eins og mig sem engan bíl á? Það er hugmynd :)
Annars fór ég í 10-11 í gær og hitti gamlan mann. Ég labbaði í átt að mjólkurvörunum og brosti til hans. Greip eina Húsavíkurjógúrt, með vanillubragði og 1,3 fitu ásamt ab gerlum. "Eru í hollustunni?" segir þá gamli maðurinn við mig. Mér fannst þetta mjög fyndið, brosti og sagði "já, auðvitað, það er hreinlega krafist af manni miðað við umræðuna í dag". Hann leit á mig og sagði "rétt er það, ég er líka alltaf í hollustunni" og brosti svo breytt að tennur hans þrjár heilsuðu mér á sama tíma - kalla það gott að maður á þessum aldri sé með eitthvað af sínum tönnum ennþá - hann var ekki að ljúga með hollustuna greinilega. Ég fór svo að skoða skálar og fleira...... þá kemur hann aftur til mín og segir "reykiru?" ég sný mér stolt við og segi við hann "nei maður, það hef ég sko aldrei gert, guð sé lof" og hann svarar þá " nei, ekki ég heldur, ég hef aldrei á minni löngu ævi prufað að reykja" ég brosti og var nokkuð ánægð með kallinn og mig, svona heilsusamleg............en þá kom hann með það........"ég hef heldur aldrei bragðað áfengi á ævinni" og brosti svo breytt, stoltur af sínum þremur tönnum - ég skammaðist mín reyndar þá og afsakaði mig á því að segja að mér fyndist nú bjórinn góður - þá fussaði hann og sagði að hann væri vondur!! Sumir skilgreina bjór greinilega ekki sem áfengi og ég hætti að skammast mín :)
1 ummæli:
ÆÆi dúlli kall ...
Elska svona gamla kalla í búð..hjálpa þeim alltaf..hehe
Skrifa ummæli