fimmtudagur, maí 26



ó ljúfa líf!
guttinn minn góði er mín næring - þessi elska, fagnar mér ávallt og eltir mig eins og skugginn enda dekra ég hvutta eins og barn. Kobbi hefur fengið að fara út úr búri sínu undanfarið en þorir ekki að taka flugið enda sennilega búin að gleyma flugtökunum. Honum finnst tyggjóið ennþá gott og öxlin á stúlku líka, gaukurinn á 15 ára afmæli í ár og ekkert farin að grána neitt meira enda grár frá upphafi með rauðar kinnar og grænan kamb. - Þessi dýr. Þau gera lífið í Grindavíkinni betra.

Eyjar handan við hornið og Herjólfur orðin spenntur að taka lýðinn um borð. Eyjatröllið góða kennt við bjálkakofa ku taka á móti og sýna lundann og taka sönginn.

Vinnan hefst 1.júní þar sem stúlka mun taka fram einkennisbúninginn og´gúmmíhanskana að nýju. Farin að sakna starfsfélaganna en fyllist efasemdum varðandi fugla- og hermannaveikinnar þar sem ég sé mig knúna til þess að brosa og taka á móti þúsundum erlendinga í Leifstöð þar sem loftræstikerfið hefur fengið falleinkunn.....ár eftir ár....

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl skvísa. Bara láta vita að ég fylgist með þér úr fjarlægð.

En vá hvað loftræstikerfið í Leifsstöð er ömurlegt, hreinlega hættulegt held ég bara. Svo gat ég aldrei verið með linsur í vinnunni þar því þær þornuðu upp á nó time. Varð að vera gleraugnaglámur allt það sumar.

Hafðu það gott ;)

Nafnlaus sagði...

Primo puntkur, ég er sjálfur að drepast af augnþurrki akkurat núna á næturvaktinni.

Nafnlaus sagði...

Loftræsiskerfið ber nálykt að utan

Nafnlaus sagði...

Voðalega er þessi fugl alveg að fara vera svakalega heppinn:)

Kristín María Birgisdóttir sagði...

Já, þetta blessaða loftræstikerfi..........þegar teppi er bæði á gólfum og veggjum í flugstöð þar sem þúsundir fara um á hverjum degi hlýtur almennilegt loftræstikerfi að vera réttlætanlegt ...