sunnudagur, maí 22
!!! "come on, come on, come ooon, love is all over me!!!"..........WigWag gerðu stormandi lukku í Eurovosion í ár, klárlega besta performið og lagið spilað trekk í trekk í stórkostlegu partýi hjá Kollu og Árna í gær. Stúlka tók vel á því og skemmti sér vel með vatnsglas í annari og bíllykla í hinni. Vorum að til 7 í morgun - sólin blindaði miðbæjarlýðinn þegar maður arkaði út af dimmum skemmtistöðunum og ekki laust við að haustið væri komið aftur, svo kalt var í morgun. Stefnan var tekin á NASA en vegna gífurlegrar vinsældar á Júrópartý Palla var röð niður á hafnarbakka - Kuldaboli var hress í gær og því ekki í myndinni að bíða þar og deyja. Í staðinn strunsuðum við í átt að Thorvaldsen en sáum ekk röðina þar fyrir Jóni Sig sem skyggði svo skemmtilega á - tókum andköf þegar við sáum sama fjölda þar og á NASA og nánast hlupum í átt að Hressó - þar var sama sagan og annars staðar. Þá var komið að snillingnum henni Önnu Steinunni - reddaði inn á Pravda í einum grænum og okkur borgið frá Kuldakastinu. Hittum mjög hressan hóp pilta sem voru í steggjapartý á Íslandi og voru að skemmta sér aðeins of vel - Klárlega hafa menn drifið sig til Íslands eftir frábæra kynningu Svanhildar í Ophru á íslensku kvenfólki :) En við skemmtum okkur sem aldrei fyrr og nú er bara að klára ritgerðina sem verður mitt sidste verk sem námsmaður í bili - allavegana fram í júlí. Nú er bara að safna pappakössum og vinnuafli í flutninga - Grindjánaborg bíður spennt..........
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Váááááá.... hvað var gaman hjá okkur á laugardaginn!! Ég skemmti mér konunglega og sjaldan dansað eins villt eins og á Pravda undir góðri stjórn Atla okkar skemmtanalöggu. Enda líka góður hópurinn sem maður var með á tjúttinu... :)
Þetta verður kannski endurtekið á afmæli skvísunar, en lofa engu...!! LOL ;)
thíhíhíhíhí...
klárlega verður tekið á því í afmælinu og auðvitað verður túttað enda tvö böll í bæ!
Annars þakka ég öllum fyrir frábært kvöld og búin að senda kollu og árna sms um hvað þau séu frábær og miklir gest- og gleðigjafar :)
Skrifa ummæli