TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ÞÓRIR!!
Snillingurinn Þórir náði mér í árum í dag. Hann er 25 ára þessi elska. Fékk afmæliskossinn í Odda um hádegi og svo fórum við í ísferð á Hagamel þar sem sjúkrabíllinn var mættur ef gullið skyldi fá hjartaáfall. Fórum svo á Studentakjallarann í bjór en liðið fékk sér annars að borða líka......minns ákvað að fara frekar heim og elda sér.....svo gaman í húsmæðraleik.
Að mínu mati þá átti Þórir mun skemmtilegri afmælisdag en ég. Ég mun þó bæta úr mínum degi þann 4.júlí en þá er heljarinnar veisla hjá stúlku í Grindjánaborg þar sem vinir og kunningjar ætla að heiðra Kristínu með nærveru sinni. Um er að ræða laugardainn fyrir sjómannadag og því mikið um að vera í plássi eins og Sjóarinn síkáti og ball eftir ball.
Verður án efa opnunarhátíð sumarsins hjá Diddu og félögum og allir sem mér þykir vænt um fá boðskort þegar ég er búin í prófum,
alltílæbless
Engin ummæli:
Skrifa ummæli