mánudagur, apríl 11

Stúlka kom heim frá Kaupmannahöfn í gær eftir að hafa eytt helginni með góðu fólki í menntamálafíling. Fjórir stífir dagar og mikið labb skiluðu sínu til lítillar frjálslyndrar hreyfingar hér á landi. Ferðalagið út gekk vel og við Andri (sálfræðinemi og sjórnarmeðlimur) skemmtum okkur mjög vel saman. Fróðleiksmolarnir svoleiðis spýttust út úr kauða og á nokkrum klukkustundum fannst mér ég vita allt. Við heimsóttum mjög merkilegan skóla sem heitir Maglegardsskole en þar eru engir bekkir, engar stundatöflur og engar kennslustofur. Það merkilega við hann er að á lista yfir alla skóla í Danmörku þar sem miðað er við árangur þá er þessi skóli númer tvö!

Við hlýddum líka á fyrrverandi menntamálaráðherra Danmerkur og fleira gott fólk, fórum út að borða og drukkun danskan bjór.....nema Andri. Heimleiðin var svo ógeðsferðalag þar sem Kristín var með mánaðarkveisuna og allir koddar í flugvélinni (sem var Slóvensk) voru búnir. Andri kom þá með fróðleikspunkt um þyngdarafl og eftir það vorum við eins og fífl þegar flugvélin fór að lækka flugið og rétti sig svo af......með því að lyfita upp höndunum þá fundum við hvernig þyngdaraflið virkaði og hendurnar urðu annað hvort mjög þungar eða ferlega léttar. (sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur?)

Besta við allt var að komast heim í rúmið mitt góða og ég fór beinustu leið að sofa klukkan 18 og svaaaaaf.

Styttist í 25 ára afmælið en það er sunnudaginn 17.apríl. Velunarar eru beðnir um að taka laugardagskvöldið næsta frá í smá hitting í kribbi Kristínar. Allt í læ ef að það komast ekki allir vegna þess að alvöru afmælisparty verður haldið í sumar.

alltílæbless

Engin ummæli: