sunnudagur, apríl 17




Hún á afmæl´í dag!!!!

Jebbs, stúlka orðin 25 ára. Þegar ég var yngri fór þessi aldurshópur í "kona & karl" flokkinn. Ég setti mér það markmið á unglinsárunum að eignast mitt fyrsta barn þegar ég væri orðin 25 ára KONA. Fannst það mjög skynsamlegt.......ÞÁ!

En, árin fljúga og tíminn líður. Barneignir koma til með að bíða.....og bíða....og bíða. Mamma og pabbi halda áfram að vera útundan hvort í sínum systkinahóp vegna barnabarnaleysis og helsti möguleiki til að rétta það hallæri við fer að verða Björn litli bróðir.

Gunnar Einars góðkunningi minn í KefCity á líka afmæli og er 28 ára í dag. Hamingju óskir til hans :)

Annars ætla ég að eiga brilliant dag.....klára að vinna í SPSS tölvuverkefni í Odda, fara upp á Skaga í fermingaveislu, koma heim og lesa 9/11 comission report & fleira tengt hryðjuverkum svo ég geti hafið ritgerðarskrif.....AFTUR. Övundsvert ekki satt?? :)

Engin ummæli: