Skelltum okkur á NASA í gærkveldi að sjá útgáfutónleika TRABANT. Bryndís talaði mig á að fara mér sér og ég hugsaði með mér hvað svona "no-name" hljómsveit væri eiginlega að halda útgáfutónleika á NASA. Var viss um að vandræðilega fámennt yrði og við fengjum hálfgert víðáttubrjálæði þarna inni í hálftómum kofanum. Þetta sagði ég nú ekki við Bryndísi og væri alls ekki að skrifa þetta hér ef annað hefði ekki komið á daginn.
Ég vil ekki meina að lágmenning ríki á mínum bæ tónlistarlega séð. Þetta er allt að þroskast og þróast. Ég er farin að gefa nýjum hljomum tækifæri og er búin að leggja þessu "gamla, góða sígilda" í bili.
Trabant voru vonum framar.........hef aldrei séð NASA eins troðið, (nema reyndar á EGO í haust) og tónlistin var æðisleg. Ég ætla klárlega að fjárfesta í nýútkomnum diski þeirra pilta og fyrir sviðsframkomuna eiga þeir hrós skilið........áramótaskautsprengjur......glimmer......glimmer.......nekt & kampavín á lýðinn........það er málið!
Takk Bryndís mín......þú áttir þátt í nýrri byrgjulengd hvað tónlistarsmekk stúlku varðar. Svona er að vera komin í hámenningu 101
Engin ummæli:
Skrifa ummæli