mánudagur, apríl 4

Desperate Housewifes...
Snilldar þættir.....því fleiri sem ég hef verið að horfa á því meira átta ég mig á hversu mikil snilldarpæling er á bak við þá. Áttaði mig auðvitað ekkert á því hvers vegna þessi þáttur vann Golden Globe verðlaunin enda ekki búin að sjá einn einasta þátt þá og fannst nafnið heldur ósexy. En úr því hefur verið bætt og núna sit ég sem fastast yfir þessu, fimmtudagskvöld sem önnur kvöld og dásama karakterana. Þær eru allar fjórar svo ólíkar og allar hafa þær sína kosti og galla. Mæli með því að þeir sem ekki hafa gefið sér tíma á fimmtudagskvöldum klukkan 22.10 að setjast niður og stilla á RÚV. Því fyrr því betra. Þetta eru jú framhaldsþættir og spennan eykst........

Við Garðsbúastúlkur ætluðum jú að stofna DH-Klúbbinn og mynda "desperate stemmningu" á fimmtudagskvöldum..........hef ég verið skömmuð af Siggu Dögg fyrir að stelast til að horfa á aðeins fleiri og fyrir að halda mig ekki á RÚV hraðanum.........Einhver verður jú að geta útskýrt laumubrandarana og pælingarnar sem ekki nást í fyrstu sýningu....mar spólar jú ekki til baka á RÚV ;).......við getum verið svo fattlausar.

Mæli annars með disknum "Funeral" með hljómsveitinni The Arcade Fire.

Engin ummæli: