miðvikudagur, mars 9

V-andamál
Væri til í að hverfa aftur í tímann áður en tæknin kom með ljóshraða og breytti öllu. Hvað var fólk að gera áður en tölvur, internet og gsm símar komu á markað?? Ef ég væri ekki með tölvu og internet þá væru afköstin í lestri töluverð. Þetta er farið að trufla og ég fer í viku verkfall frá þessu bloggi, msn og interneti. Sleppi því að tengja internet-kapalinn við tölvuna og reyni í staðinn að LESA. Sjáum hvort það takist. Ef ekki þá er ég að spá í að koma af stað meðferðarheimili like Stella og taka á móti tölvu- og internetfíklum. Svo lekkert.

Þeir sem telja sig þurfa á meðferð að halda í þessum málum hafið samband......

Engin ummæli: