langafrjádagur - dies passionis........
hvað ætli það séu margir krakkar sem halda - og fullorðnir sem héldu einu sinni - að þessi dagur væri actually laaaaangur?? Jú ég hélt það, fékk samt guðfræðslu á heimilinu (sem mamma lofaði þegar hún lét skíra mig) en samt sem áður þá fannst mér að þessi dagur hlyti að vera lengri en aðrir föstudagar. hverjum myndi ekki finnast dagurinn lengi að líða ef hann þyrfti að ganga í gegnum þær pýntingar sem elskulegur Jesú okkar þurfti að þola? Jú, það er einmitt þess vegna sem menn telja nafnið vera komið.
Í kirkjuárinu er þetta sorglegasti dagurinn. Skemmtanir eru bannaðar með öllu fram að miðnætti. En tímarnir eru að breytast. Fólk er farið að verða frjálslegra og síðasta sem ég heyrði var að það lægi fyrir frumvarp í þinginu að leyfa opnanir á þessum degi sem og páskadag. Hvers eiga t.d. þeir að gjalda sem að ekki trúa á Krist? samfélagið okkar er að verða fjölþjóðlegra og mér finnst það ekki eiga vera bundið í einhverjar reglur hvenær má vera opið og hvenær ekki vegna trúar. Það vill nefninlega svo skemmtilega til að í dag má fólk trúa á eitthvað annað eða ekki neitt án þess að verða hengt sökum þess.
annars er stúlka munaðarlaus í borginni og bíður þess að verða sótt af góðu fólki. Fjölskyldan bíður og pabbi ætlar að elda surprise í kveld. Gleðilega páska elskurnar.....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli