mánudagur, mars 28

Oh well, páskafríið búið og stúlka mætir í skólann á morgun. Páskaeggið ennþá óopnað og afköstin í lærdómnum ekki mikil. Þetta frí var of stutt til þess. Átti annars ánægjulegar stundir með góðu fólki. Familían og vinir gerðu fríið skemmtilegra. Fór í bæinn á föstudaginn og svo var smá hittingur a casa mia í gærkveldi. Sleppti því að fara í bæinn með liðinu og eldaði mér pizzu og þrennan klikkaði ekki frekar en fyrri daginn, pizza með aukaost, kókteilsósa og pepsí.

Skellti inn nokkrum myndum síðan á fös og í gær. Albúmið er læst og því aðeins fyrir vini......þeir sem vilja sjá sendi mér bara meil eða sms og fá passwordið.......annars má vera að ég hendi bara viðkvæmu myndunum út og opni það....sé til.......

Engin ummæli: