TRIVIAL OG GETTU BETUR
Það var margt um mannin í kotinu hennar Kristínar í gær. Stjórnmálafræðinemar ákváðu enn og aftur að hittast og gera eitthvað skemmtilegt (við erum svo skemmtileg) saman og ákváðum við að spila. Við vorum hvorki fleiri né færri en 12 sem slógum til og hrúguðum okkur í kringum stofuborðið. Í trivial voru það ég og Ómar sem unnum, þá voru 2 í liði (enda ekki allir komnir), síðan var alltaf að bætast í hópinn og þegar við fórum í Gettu betur vorum við 3 fjögurra manna lið. Ómar varð svo lánsamur að vera í vinningsliðinu aftur, en þess má geta að hans lið var með ótrúlegt forskot sem þau svo töpuðu niður í lokin. En þetta var mjög skemmtilegt og alveg bókað mál að þetta verður gert oftar, ásamt badmintoni, skvassi, körfubolta, fótbolta, ................og bíóferðum.
Takk fyrir kvöldið!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli