Þá er komið að því! Stúlkan er orðin 24 ára. Vá hvað tíminn líður hratt. Mér finnst svo órtúlega stutt síðan ég var í grunnskólanum og horfði á krakkana í 8.bekk þegar ég var í 5.bekk og mér fannst það rosalega fullorðið að vera 13 ára!! En þetta er fínt. Stórafmæli á næsta ári og þá verður partý..............því ekki verður það núna. Mikið að gera í skólanum og sonna. Býst nú samt við fólkinu fyrir sunnan og ég var líka að baka þessa flottu köku áðan. Þeir sem vilja koma og fá sér bita verða bara að láta vita (svo ég geti bakað meira) En ég ætla ekki að hafa þetta lengar í bili enda bíður bunki með uppl. um forsætisráðherra Bretlands lestrar. Ef afköst dagsins verða sæmileg þá mun ég verðlauna sjálfa mig í kvöld og kíkja kannski á smá tjútt.
Eigið góðan dag eins og ég :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli