þriðjudagur, apríl 6


THE PASSION OF THE CHRIST TILVALIN YFIR PÁSKANA
Mæli ekki með myndinni DAWN OF THE DEAD.....skelltum okkur í bíó, nokkur úr stjórnmálafræðinni í gærkveldi og ég get svo svarið fyrir það að ég hélt að ég myndi deyja úr hræðslu í byrjun myndarinnar. En þó svo myndin hafi verið ógeðsleg og með fyndna punkta annars lagið þá var hún alls ekki góð, ég fór með frekar neikvæðu hugarfari á hana og það virtist ætla að breytst í byrjun en eftir hlé fannst mér hún mun verri, svo sat ég líka á endanum sem var frekar leiðinlegt á svona mynd. Næst er stefnan tekin á THE PÁSSION OF THE CHRIST eða TAKEN LIVES. Núna styttist í prófin og Kristín er búin að heita sér því að vera dugleg að læra og reyna að rumpa af svona eins og tveimur ritgerðum. Reyndar er tjútt á miðvikudaginn þar sem VAKA er að slá upp partýi á Hverfisbarnum klukkan 21.30 og hvet ég að sjálfssögðu alla til þess að mæta og taka smá páskatjútt enda er frí daginn eftir hjá flestum þar sem Skírdagur er á fimmtudaginn.

Engin ummæli: