LANGUR FÖSTUDAGUR
Jæja.....styttist í páskaeggin. Kristín ætlar að skella sér suður í Grindavíkina seinnipartinn og heilsa upp á familíuna. Ég er líka að fara að vinna í Festi í kvöld, svaka ball þar á bæ með Kalla Bjarna og félögum í Lions quest. En það er spurning hvort að stúlkan geti afgreitt á barnum þar sem ég er að drepast úr harðsperrum í vinstri únlið eftir badmintonið í gær. Við skelltum okkur nokkur úr fræðinni í TBR þar sem hann Helgi (bandmintonspaði) opnaði húsið sérstaklega fyrir okkur. Svei mér þá alla mína daga.............ég og Jón Páll vorum nú ekkert sérlega góð, enda mín ekki búin að slá flugu síðan í grunnskóla. En þetta kemur allt með æfingunni og finnst mér að við ættum að gera þetta að föstum liðið svona 2 sinnum í mánuði, svo skvass tvisvar sinnum í mánuði líka......og svo fótbolta 2 sinnum í mánuði. Þá verðum við öll komin í toppfprm eftir árið :) Líst ykkur ekki vel á það? IM IN!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli