föstudagur, desember 2
Saltstauturinn
Ef ég hef einhvern tímann hallast að því að reimt sé hjá mér þá er það vegna saltstautsins. Hann er alltaf uppi í skáp og í fjórða skiptið er ég að taka hann niður til notkunar og stillingin er röng. Það er hægt að stilla á þrenna vegu: mjög lítið salt, meira og svo gusa, sem ég nota ALDREI (hver þarf svo mikið salt?) Anýhú. Síðast í morgun stóð ég sjálfa mig að því að taka stautinn niður og þurfti ég enn og aftur að rétta við stilllinguna.Það er alltaf búið að stilla á "ausu". Ég vil samt bara trúa því að efnafræðilegar ástæður liggi að baki. Of mikill þrýstingur og of heitt inni í skápnum sem leiðir til þess að lokið færist ALLTAF í sömu átt að stóra gatinu. Getur ekki einhver staðfest þessa efnafræðikenningu mína??? Þá sef ég betur þið skiljið...........
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Heheh...ég held að það sé reimt hjá mér líka.
Vakna alltaf við hljóð úr ísskápnum um þrjúleytið (Exorcism of Emily Rose! það er þá sem að djöflarnir fara á kreik) mjög spúkí!
Svo um daginn fer ég uppí rúm og lít í gluggasylluna á allar myndirnar af fólkinu sem ég elska, og þá er búið að snúa myndinni af Guðrúnu við...mjöög einkennilegt.
Gæti verið að Palli geri þetta þar sem að hann er oft að kúra hérna...vona það bara.
sorry, þetta er klárlega draugur og hann er vondur því hann er að reyna eyðileggja matinn þinn..
kveðja,
casper
Sunna: það er stranglega BANNAÐ að minnast á Emily Rose! ég er nýbúin að komast yfir þessa mynd.
JP: klárlega vondur - fólk getur dáið af því að boða of mikið salt
Eða að hann er bara gourme :)það er svo gott að salta mikið
kv J
Skrifa ummæli