Hlustaði á hluta viðtals við Ágúst Ólaf og Ástu Möller í Bítinu í morgun. Til umræðu var vændisfrumvarp sem fór mikinn hér fyrir rúmu ári síðan og ágætir feministar misstu sig hreinlega yfir. Er hægt að skrifa undir frumvarp sem refsar einungis öðrum aðilanum þegar báðir eru að fremja "lögbrot"? Ég geri mér fulla grein fyrir því að margar eru nauðugar í þessu en er ekki hægt að finna sér margt annað "smekklegra" að gera hér á Íslandi? Þess má geta að vændi er BARA bannað ef það er til framfærslu. Hreinlega ekki klár á því hversu margar stunda þetta hérlendis sér til yndisauka en sennilega má finna einhverjar........hvort sem þær fá pening eða eitthvað annað.....og sennilega einhverjar sem eru í þessu nauðugar, sem er miður. Nefndin sem fjallar um málið er klofin í afstöðu sinni og því spennandi að fylgjast með gangi mála. Ég nenni í raun ekki að skrifa um þetta vændismál meira þar sem ég fékk nánast upp í kok af þessari umræðu síðast og fannst mér oft mjög ómálefnanlegar umræður spretta upp sem gerðu þreytta, þreyttari. Ég styð ekki vændi en finnst þessi löggjöf gefa frekar falska glansmynd af því hvernig málin muni þróast verði hún að veruleika. En hvað veit maður......jafnvel að þetta blessist allt og allir verði sáttir, "Miðstéttamennirnir" sem skv Ástu Möller stunda þetta - hætta að kaupa sér þjónustuna vegna hættu við sekt ef frumvarpið verður að veruleika......... En hvað með auðmennina? Getur ekki verið að þeir stundi þetta líka sér til yndisauka? .......er ekki skíttin sekt bara dropi í hafði fyrir þá?
miðvikudagur, desember 7
...enn um vændi

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
12 ummæli:
Þetta er erfitt mál.. túlkun er alltaf erfið.. það hefur marg oft verið reynt að setja bann á klámiðnað í BNA og þátt auðvitað sett saman nefnd en þessar nefndir hafa aldrei komist lengra en það að geta ekki skilgreint hvað klám er...
Er þetta ekki líka akkúrat málið.. hvenær er vændi orðið vændi? og hvernig ætlaru að setja þetta í lög?
Held að skilgreiningar séu aðal vandamálið
mjög góður punktur Sigga, í raun er í mörgum tilfellum engin undankomuleið fyrir þá sem eru komnir á kaf í að neyta og selja dóp -
Boggi: síðast þegar ég vissi að þá var skilgreiningin á vændi sú að um leið og þú sefur hjá a.k.a hefur samræði við einhvern og færð greiðslu fyrir að þá erum við komin með vændi
hvernig greiðsla? Kona/karl geta átt í "ástarsambandi" og þegið ýmsikonar greiðslur eða greiða fyrir..
hættan er auðvitað að fólk fari að misnota illa skilgreindar lagagerðir..
Ég er auðvitað ekki fylgjandi vændi enda er það yfirleitt fólk sem er á vondum stað í lífinu sem stundar slíkt.. en maður verður líka að vera leiðinlegi gaurinn stundum og skoða allar hliðar á málinu.. öðruvísi bætum við ekki heiminn..
vantar bara jólakóklagið undir og þetta væri fullkomin skrif hjá mér
ég geri þér tilboð um samfarir, þér finnst ágóðinn það mikill og þú tekur boðinu. Viðskipti okkar trufla enga aðila í þjóðfélaginu en það er bannað.
Klárlega vændi samkvæmt lögunum, en það er ekkert að því.
bara nettur Hannes í þér JP!
Boggi: það er rétt.......hvað er hvað er greiðsla og hvað ekki?
víst má ég selja lifrina mína ef það stendur til boða og fá þína í staðin. Svo einfalt er það nú :)
Vændisfrumvarpið er m.a. ráðstöfun okkar til að uppfylla ákvæði kvennasamning S.Þ. sem að tók gildi 1981, þ.e. hamla gegn hvers konar verslun með konur og gróðrastarfsemi tengdri vændi kvenna.
Mér finnst ekki hægt að líkja vændi við fíkniefnasölu þar sem að þá er í raun gert ráð fyrir að engin munur sé á dauðum hlutum og lifandi manneskjum.
Viljum við líta á líkama fólks sem söluvöru??
Mér finnst ekkert óeðlilegt við það að aðilinn sem að býr til eftirspurnina sé sá sem sekur sé enda eru það kaupendur vændis sem að hafa peningana og valdið!
Mæli með lestri vændisskýrslu dómsmálaráðuneytisins frá 2001....
Já það er alveg punktur hjá þér Sunna, með að gera þurfi greinarmun á lifandi og dauðum hlutum. Ég átta mig bara ekki á þessu vandamáli hérna á Íslandi þó svo vissulega sé það til staðar. Hver man t.d ekki eftir viðtölum sem kom við íslenskar konur í fréttum, þar sem andlitið var "blörrað" og röddinni breytt........jú, þær voru skuldum vafnar og þurftu mikinn og góðan pening.........er ekki málið hjá venjulegu fólki að semja við bankann, bretta upp ermarnar og fara út á vinnumarkaðinn.......þið vitið þennan almenna Ekki eins og þetta sé síðasta stráið hérlendis að fara í vændi þó vissulega sé það í öðrum löndum. Ef það er raunin að konur séu að þessu til að græða með skjótum hætti þá á ekki síður að refsa þessum konum eins og þeim sem kaupa þjónustuna. En svo inn á milli má jafnvel sjá mansal og það þarf að sjálfssögðu að berjast harðast gegn.
Held þú sért ekki að gera þér grein fyrir að þetta vandamál er til staðar hér á landi. Kíktu á skýrsluna...sem er þó 4 ára gömul.
Vændi mun alltaf vera til staðar.Mig minnir að þetta sé ein af elstu starfsgreinum ef maður ætti að kalla það. Það sem ætti að gera er að lögleiða þetta svo þetta fólk borgar skatta. Það eru til dæmi um að fólk velur þessa starfsgrein en er ekki tilneydd t.d útaf dópi.
"Ef það er raunin að konur séu að þessu til að græða með skjótum hætti þá á ekki síður að refsa þessum konum"
Lestu þetta,hvað er að því að menn noti líka sinn til þess að græða peninga? Það er aragrúi af mönnum sem stunda íþróttir og hafa því lfibrauð sitt af íþróttum. Þessir aðilar fara oft offari og neyta lyfja sem fara illa með skrokkinn á þeim, sterar. Þetta er þeirra val og ykkur kemur það einfaldlega ekkert við.
Kemuru á bubba á þorláksmessu?
Þetta er sjaldnast eitthvað val einsog það að velja sér starfsframa o.s.frv.
Að líkja vændi við íþróttir er ja bara plein heimska að mínu viti en það er kannski bara ég og mitt.
Sorglegt hvað fólk getur talið sér trú um til að líða betur.
Pís át
Skrifa ummæli