
Katie Melua verður víst í Höllinni þanng 31.mars næstkomandi. Langar að fara því hún er nokkuð góð - reyndar möst að vera í stúku. Einhver?
Annars er eitt próf búið og þrjú eftir - þangað til borða ég mandarínur, piparkökur og drekk jólaöl.........Hlakka of mikið til að vera búin í þessum prófum því það er OF mikið framundan.....bjór, glögg, ball, jól, matur og flugeldar.
3 ummæli:
Þú verður að hafa hraðar hendur,því einungis 500 miðar eru eftir! Það er bara selt í sæti,,mismunandi dýrt hvar þú situr!Miðasala er á concert.is
Mig langar svolítið að fara...
En mitt einstaka skipulagsleysi veldur því að ég get engan vegin ákveðið það næstum fjórum mánuðum áður..
Hulda: þakka ábendinguna - kom í ljós þegar ég kíkti þangað inn að það er bara helvítis dýrt að fara og sjá kellu. Er farin að endurskoða þetta.
Guðfinna: já, þetta er svolítið framítímannskipulag - og satt best að segja er ég alls ekki góð í því........endar sjálfsagt að maður sleppir þessu, sest bara í sófann heima hjá sér í góðum félagsskap, rauðvín og osta og skellir einhverri góðri tónlist á......,.svona eins og The Anthony & the Johnsons :)
Skrifa ummæli