laugardagur, desember 3

fine sæturday

Átti fínt gærkvöld með góðu fólki á Hereford steikhúsi þegar gúffað var í sig af semi-góðu hlaðborði. Reykti þorskurinn var góður ef maður lenti á þunnri sneið. Of þykk var vökvakennd og ekki að gera sig. Öndin var eins og sápa á bragðið og pate-ið var of sterkt. Það sem ekki gat klikkað var gott kjöt að undanskildu nautaskósólanum og rauðvínssósunni sem var aðeins of þunn. Eftir Hereford og snilldar uppistand Guffa við borðendann fórum við á Póstbarinn, Rex og 22. Dagurinn í dag ber vott um netta þynnku en ginið fór engu að síður vel í stúlku. Dreif mig af stað í Odda og var komin rúmlega 18. Lét mig hafa það að borða ósómahamborgara úr 10-11 enda lítið úrval þar um helgar. Svo er nóg nammi málið og gott námsefni. Hver myndi ekki vilja skipta og lesa áhrif smáríkja á stofnanastrúktur Evrópusambandsins??

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Í þessu fáu skipti sem ég hef farið á Hereford þá hef ég fengið sjúklega góðan mat! Öndin eins og sápa og bragðið? muhahahaha hefurðu verið eitthvað í því að borða sápu Kristín mín? ;)

Kristín María Birgisdóttir sagði...

nei Helgi! en maður getur oft tengt bragð og lykt....... en jú, sem barn smakkaði maður örugglega á bleiku girnilegu LÚX sápustykki - tek það samt fram að þessi aðferð var ekki notuð á mínu heimili við ljótum munnsiðum......enda var ég afar prúð og stillt sem krakki :)