
Drullukökukast og meiðyrði eru í tísku í dag.
Í morgun þegar ég var á leið í tíma hjá Hannesi hringir síminn. Klukkan var 09:05 og á línunni var Addi a.k.a fatli. Hann spyr hvort að ekki sé tími. Heldur betur hélt ég. Þá tjáði hann mér að enginn væri mættur. Þegar ég mæti standa þeir tveir þarna. Addi og Hólmsteinn. Allt í einu ákváðu allir hinir að skrópa. Kannski tóku þau sig saman og sýndu með táknrænum hætti samstöðu sína með Jónsbókinni. Hannes var ekkert sérlega sáttur og sagði ekki fundafært og því myndi tíminn falla niður.
Að lokum sagði hann okkur að Jonni Óla hefði sent sér boðskort í útgáfupartýið. Fannst það ósmekklegt.
Ég held með hvorugum í sínum málum. Hvað varð um heimildirnar? "ég tel..." ,"ég heyrði.....", "menn segja...."
* Meðfylgjandi mynd er tekin 1958 af Jóni Ólafs (vinstri) og Hannesi Hólmsteini (hægri) meðan allt lék í lyndi.
6 ummæli:
Gvuð hvað þeir eru miklar krúsíbollur...
já, finnst þér ekki? Hissa á að Hannes hafi viljað láta mig hafa hana :)
bíddu....voru þeir vinir? æææ já mér finnst skítkast á alla bóga alltof vinsælt á Íslandi. Kannski er það svona alls staðar.
tja - spurning hvort ég geti ekki bara reddað henni líka - þessi mynd af Jóni og Hannesi fannst í myndaalbúminu hennar ömmu - hún passaði þá báða þegar þeir voru smástrákar - trúið þið því?
Nei reyndar trúi ég því ekki og held barasta að þú sért að plata til að ljá sögunni meiri skemmtanagildi.. en ég er náttúrulega kannski bara tortryggin með eindemum.. ;)
Sjöfn
já, reyndar hefuru alveg rétt fyrir þér.......enda þversögn hjá mér að segjast bæði hafa fengið hana hjá Hannesi og ömmu - passar ekki alveg - ....
Skrifa ummæli