miðvikudagur, júlí 27

Vanmetin hljómsveit



Roxette-lögin eru komin aftur í tísku. Nú hljóma þau í víðtækjunum landsins annað hvort í "slow motion" fíling eða "ofur-mixi" á Kiss FM. Mér hefur fundist þessi hljómsveit mjög "underated" - fólk er þó að ranka við sér og átta sig á því að þessi dúett er alveg að gera sig - jafnvel ennþá meira í flutningi einhverra annara. En hvað sem því líður þá nálgast helgin óðfluga og alltaf bætist við í Fjólugötumafíuna sem nú telur 9 manns! Rigningu er spáð þessa helgina og hún er bara góð þar sem það þykir vel við hæfi enda Grafík á svæðinu.

Þeir sem vilja þiggja góð ráð fyrir helgina ættu hins vegar að lesa þennan skemmtilega pistil eftir Þórð á Deiglunni.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mundu bara að taka með þér húfu, vetlinga og regnföt hahahahahah,,, en ég verð með stuttbuxur og sólarolíu því ég fer Norður, allavega vona ég að það verði nú smá sól.
Vonandi skemmtir þú þér vel og taktu nú á því eins og sannur Grindjáni ;)
Kv
Ómar

Kristín María Birgisdóttir sagði...

bíddu bíddu!! Varstu ekki að monta þig um daginn að vera að fara til Eyja á tveggjað hæða rútunni?? hvernig fór það? fékkstu minnsta stráið kannski?

Nafnlaus sagði...

Það er örugglega hinn Ómar ;)..
En mér sýnist lítið verða úr sólarolíu notkun þessa helgina hvar sem maður er,, þetta sukkar maður.
"Betra er blaut tjald í eyjum en þurrt í skáp"
þvílík spakmæli hehehe.

Kv
Ómar