miðvikudagur, júlí 13

Kjötfars í poka og hávetur

.....eitt af því sem stúlka dreymdi þessa nóttina. Ótrúlegt hvað mig dreymir oft vetur um hásumar. Þýðir sennilegast að ég sé of köld og fráhrindandi....nei annars....og kjötfars! hvað er nú það?
Fékk gylliboð frá tveimur samnenemendum áðan, Adda og Siggu Dögg um að koma í spilakvöld sta sera....Kristín kemst ekki eins og annað fólk í venjulegri 8-5 vinnu þar sem ég vinn 12 klst í senn og annað hvort dag, kvöld eða næturvakt - í dag er það kvöldvakt og því ómögulegt að komast nema strjúka úr vinnu.
Fór annars á fótboltaleik í gær og varð næstum úti úr kulda - kannski þess vegna sem mig dreymdi veturinn....veðrið í gær var eins og í október og mér finnst að allir Íslendingar eigi að fá afslátt hjá Sumar- eða Heimsferðum í sólina ef að áfram heldur sem horfir í veðurmálum.
Sá svo He´s just not that into you þáttinn hjá Ophru áðan og þarf alveg að fara að ná mér í þessa kennslubók - já, svo magnað að geta gefið vinkonu sinni ráð varðandi strákamálin, þau eru víst hin erfiðustu mál að leysa skv einhverjum snillingi.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Blessuð Kallamálin ;)

Ertu búin að framkalla kona?

Kiss
Heiðdís

Kristín María Birgisdóttir sagði...

framkalla? neeee - fór í smáralindina um daginn og var að glugga í leiðinni á eftir framköllunarstofu en sá ekki - ætla að drífa í þessu sem fyrst :) svo verður myndakvöld!!

Nafnlaus sagði...

damn! munu þær þá ekki koma á netið líka??

bannað að nota oldies myndavélar í dag