
Nú er vika í mestu ferðahelgi ársins og landinn iðar í skininu að komast í frí, fjölskyldan í afslöppun og unga fólkið á djammið. Margir flýja land í sólina á meðan aðrir kjósa rigningu í tjaldi með dósabjórinn í hönd. Eitt af því sem að stúlka hefur verið að brjóta heilann við undanfarna daga er það hvort hún eigi að fara á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum eða til Rimini á Ítalíu í tvær vikur?
Ef fleiri eru í sömu vandræðum þá skulum við aðeins líta á það hvernig best er að vega og meta hlutina:
Rimini á Ítalíu:
Flugtími: 3,5 klst
Heildarkostnaður: 100.000 kr með gjaldeyri (ef stúlka er sparsöm)
Kostir: Miklar líkur á mjög góðu veðri í heila 14 daga. Gott að borða og ódýrt að drekka. Afslöppun út í eitt og hægt að sofa út alla dagana. Sundlaug, sandalar, ermalausir bolir og hægt að klæða sig í sumarföt!
Gallar: Útgjöld númer eitt, tvö og þrjú. Sólbruni ef ekki er varlega farið og 2-3 dagar ónýtir í kjölfarið. Eina fólkið sem maður hittir er á aldrinum 40 + því allir hinir eru í Eyjum. Karlmennirnir þar er með plokkaðar augabrúnir og í támjóum skóm, mikið gel og í ermalausum bolum.
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum:
Flugtími: c.a. klst.
Heildarkostnaður: 40.000
Kostir: Fullt, fullt af skemmtilegu fólki og djamm úr í eitt. Tjald og útilegustemmning, góðar hljómsveitir og þá sérstaklega strákarnir í Trabant ásamt Bubba Morthens að ógleymdri indversku prinsessunni Leoncie. Á hverju strái mætti einnig bera augum gullfallega íslenska pilta í föðurlandinu góða og jafnvel íslensku ullarpeysunni líka. Íslenskt brennivín og bjór á kantinum!!
Gallar: Nenni ekki að telja þá upp þvi í mínum huga munu engir gallar verða á þessari ferð því mín hefur þegar keypt miða í flug og á svæðið.......eina sem ég finn þessari hátíð til foráttu er að hún mætti alveg vera í svona viku.
Niðurstaða þessarar pælingar var einföld........Þjóðhátíð í Eyjum í ár er málið.
5 ummæli:
Kostir: Tjaldstemmningin og hústjöldin, lundi, kjötsúpan, Loverboy partý, brennan, flugeldasýning og brekkusöngur :)
stemmning og ógleymanleg skemmtun :D
Gallar: alltof stutt... enda er byrjað á miðvikudeginum í Eyjum...
svk Jóni Helga Eyjabúa þá tekur það bara 15 mín að fljúga til Vestamanneyja! fór aðeins á mis....bara aðeins....
skv
Are those what we in England call 'The Northern Lights'? They are beautiful....I wish I could understand your blog Kristin! x
no those are called "blis" in iceland - and the pic is from the biggest festival in Iceland held every year in a small island called Vestmannaeyjar
Kristín María
Skrifa ummæli