
já, fátt rætt þessa dagana en þjóðhátíð sem framundan er. Vaknaði í nótt við símtal frá Bogga Eyjabúa og heyrði bara "ÉG finn frið inni í mér!! á þjóðhátíð......!!!!". Boggi hrópaði hástöfum að núna væru þeir félagar að hita upp fyrir næstu helgi og kauði vildi ekki láta stemmninguna fara fram hjá stúlku. Verð að viðurkenna að þetta var ágætis uppvakning. En Boggi er að standa sig með myndasyrpuna af undirbúningi fyrir stórhátíðina og þeir sem vilja kíkja og sjá hvað er að gerast þessar stundirnar í Eyjum fara bara inn á myndasíðu Borgþórs þar sem drengur telur niður dagana fram að ósköpunum. Kjötsúpuboð á kanti hjá da Rookie vinnufélaga og fátt sem gæti klikkað........nema flugið ef þokukennt verður....sem við auðvitað voum að verði ekki.
Myndasyrpa Bogga: http://public.fotki.com/Boggi/undirbuningur_2005/
4 ummæli:
Hehe..Þið þjóðhátíðarfólk eruð eins og sértrúarsöfnuður :D
En allavega þá óska ég ykkur góðrar skemmtunar og vona að helgin standist þessar gígantísku væntingar sem þið gerið til hennar ;)
kv.
Guðfinna Alda
hehehehe, mikið rétt hjá þér Guðfinna mín....það eru miklar væntingar... jafnvel spurning um að gíra sig aðeins niður? en hvað getur maður gert? vinna með eyjapeyja og svo fínir félagar sem ættaðir eru eða búa í eyjum a.k.a Boggi, Brynjólfur, Jón Helgi, Skapti, Ingibjörg Guðlaug and many more.....nema sú síðast nefnda beilar í ár!
Hehe..Já pottþétt skemmtilegur félagsskapur í þessum söfnuði :) ..... En ég fengi örugglega ekki inngöngu þar sem ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð og myndi frekar velja Ítalíu ;)
Gerði það síðasta sumar..Fór til Sikileyjar og Usticu (pínulítil eyja utan við Sikiley) í staðinn fyrir djamm um Versló og veistu ég myndi pottþétt gera það aftur ;)
..Þetta verður samt pottþétt gaman hjá ykkur :D Þú verður líka aðalgellan með nýju sólgleraugun þín ;) ..Það er að segja ef svo ólíklega vill til að sólin ákveður að láta sjá sig ;) hehehe...
kv.
Guðfinna
beila því miiiður....grenj!!!
lítur samt út fyrir útileiguferð um landið með vinahópnum...þannig að ég leggst sem betur fer ekki í þunglyndi...
Góða skemmtun skvís!!!
Skrifa ummæli