sunnudagur, október 30

Misheppnaður Egill - sjalfumglaður Gísli

Sjá hluta af Silfrinu áðan. Mér finnst alltaf gaman að því þegar tökur hefjast áður en þáttastjórnendur átta sig á því að verið er að sýna þá "live". Gerðist áðan hjá Agli Helga. "Nei, horfið bara á mig......ekki í myndavélina." Þetta sagði hann við þá Gísla Martein og Vilhjálm Vilhjálms, sem báðir berjast um oddvitastöðuna hjá Sjálfstæðisflokknum í Borginni. Hvað er málið með það að mega ekki horfa í myndavélina? - var Egill hræddur um að Gísli gæti ekki verið hinum megin við borðið og færi jafnvel að stjórna þættinum hans? Annars finnst mér merkilegt hvað menn geta alltaf haft orð andstæðinga sinna að leiðarljósi og sem reglu um leið og það þóknast viðkomandi. Þetta gerði Gísli Marteinn með því að vitna í Mörð Árnason af öllum. Jú, Mörður á að hafa haft þá skoðun að þeir stjórnaranstæðingar sem vildu Vilhjálm í fyrsta stætið skv skoðunarkönnun vildu hann frekar því þá væri auðveldara að sigrast á flokknum. Gísli tekur þessu að sjálfsögðu sem svo að hann sé hinn eini rétti í Borgina, því þeir sem eru EKKI sjálfstæðismenn og vilja frekar Villa, vilji hann bara því hann eigi ekki að geta staðið sig. Þvílík vitleysa. Eru menn svona ótrúlega uppfullir af sjálfum sér að þeir geti ekki trúað því að aðrir geti verið hæfir til verks?

Ég vil þann hæfasta og ég tel Gísla alls ekki vera það - hann var góður í morfís, góður í Vöku, góður á RÚV - en hann þarf að bíða með Borgarstjórastöðuna. Nema hann sé að reyna að taka Geir Hallgríms/Davíð Odds á þetta, gæti verið.