laugardagur, maí 29

Ljúft laugardagskvöld
Eftir tvo daga í bjór og gini var skynsamlegt að eyða kvöldinu bara heima í kotinu og slaka á. Gerði mér salsadip og horfði á Perluhöfn milli þess sem ég skipti yfir á skjá 1, þar sem verið var að krýna miss Ice. Kristín er hætt að djamma í bili og mun sennilega ekkert fá sér kaldan öllara fyrr en ég verð komin í kóngsins Köben í þarnæstu viku. Ég þakka Sunnu partýið í gær, Guffa heimboðið og Hildi Maríu fyrir skemmtilegt tjútt og labbið heim í góða veðrinu (á táslunum) eftir rennandi stemmningu á Sólon. Verst að snúllan kemur til með að vera á vaktinni á móti mér í sumar þannig að við endurtökum ekki leikinn fyrr en í haust!! Og þá jafnvel á Laugarvatni........en þar kem ég til með að eiga tvo vini næstu önn þar sem Ómar kútur er líka að fara í íþróttakennaraskólann. Næst tekur vinnan við og hefst hún með næturvakt 1.júní!! jei
Lifið heil krúttin mín.......elska ykkur
Natten spatten