föstudagur, desember 2
Saltstauturinn
Ef ég hef einhvern tímann hallast að því að reimt sé hjá mér þá er það vegna saltstautsins. Hann er alltaf uppi í skáp og í fjórða skiptið er ég að taka hann niður til notkunar og stillingin er röng. Það er hægt að stilla á þrenna vegu: mjög lítið salt, meira og svo gusa, sem ég nota ALDREI (hver þarf svo mikið salt?) Anýhú. Síðast í morgun stóð ég sjálfa mig að því að taka stautinn niður og þurfti ég enn og aftur að rétta við stilllinguna.Það er alltaf búið að stilla á "ausu". Ég vil samt bara trúa því að efnafræðilegar ástæður liggi að baki. Of mikill þrýstingur og of heitt inni í skápnum sem leiðir til þess að lokið færist ALLTAF í sömu átt að stóra gatinu. Getur ekki einhver staðfest þessa efnafræðikenningu mína??? Þá sef ég betur þið skiljið...........
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)