þriðjudagur, mars 1
Horfði á mynd á sunnudagskvöldið, NOTEBOOK, það var búið að segja mér að ég yrði að horfa á hana með einhverjum sætum strák, þetta væri sko þannig mynd............... sem betur fer var ég ein, ég skal sko segja ykkur að venjulega grenja ég ekki yfir mynd, en tárin kláruðust. Þetta hefði ekki verið gaman með sætan gæja við hliðina, þá hefði ég þurft að gera eins og forðum...taka eitt WC á þetta bara........var 15 ára og að byrja með æskuástinni. Ákváðum að horfa á "when a man loves a woman" einmitt mynd sem ég grenja yfir, en vegna þess að ég var með gæjann mér við hlið þá fór ég á klósettið og grenjaði þar! Hversu hallærislegt er það?
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)