Til hamingju Heiða
Elskuleg æskuvinkona er 26 ára í dag. það eru akkúrat tvær vikur á milli okkar. Skemmtilegt í den tíð að afmæli okkar bar alltaf upp á sama vikudag. Þeir afmælisdagar sem eru mér ferskastir í minni eru þegar við hittumst snemma dags og gáfum gjafir. Annars óska ég þessari verðandi tveggja barna móður alls hins besta. Kristín ætlar að vera tilbúin barnapía á kanti þegar síðara barn kemur í heiminn en þess má geta að hún mun eignast tvö börn á innan við ári. Emily Ósk kom í september í fyrra og næsta kríli kemur í ágúst. Annars mæli ég með að fólk lesi stutt, beitt og hnitmiðað bréf til blaðsins á síðu 18 í Fréttablaðinu í dag. Þar sendir Valgeir Sigurðsson, varaformaður Hollvinasamtaka RÚV þeim sem vilja gera stofnunina að hlutafélagi, tóninn. |

